Í einkatímum sínum fléttar Lára saman kakóathöfn, shamanisma & meðferð í höfuðbeina & spjaldhryggsjöfnun ásamt lifandi tónheilun. Einkatímar hjá Láru eru 75 mín og kosta 15.000kr. Móar bjóða líka upp á EINKATÍMA FYRIR vinahópa, vinnustaði & saumaklúbba. Tilvalið að hefja t.d. gæsunar-, steggjunar- eða afmælisdag í MÓUM. Þá er boðið upp á kakó, slökun & nærandi samveru. Verð fyrir hópa er 50.000 kr. Ef að hópurinn er innan við 10 manns er hægt að semja sérstaklega um verð.
Bóka tímaÍ öruggu rými þar sem hugsunin hægir á sér, tilfinningarnar mýkjast og líkaminn er leiddur inni í
hreyfingar, hrynjanda og skynjun sem vekur jafnt og svæfir, styrkir jafnt og heilar, víkkar jafnt og
hún dregur saman, kjarnar. Heilög stund með Láru.
Lárujóga er ómissandi þáttur í tilveru minni og heldur mér í tengslum við líkama minn.
Æfingarnar er góðar og hafa hjálpað mér að halda stirðleika og verkjum í skefjum.
Tímarnir hjá Láru eru algjörir töfrar. Þeir gefa manni einstaka hvíld fyrir huga og líkama. Góðar
æfingar, lifandi hljóðfæraleikur, möntrusöngur og lifandi tónheilun sem Lára gerir á sinn einstaka
hátt og auðvitað best gerði cacao bolli sem ég fæ
Lárujóga er fasturpartur af minni rútínu. Líkaminn teygist og það slaknar á allri spennu en vænst þykir mér þó um hvað hugurinn róast á meðan Lára leiðir okkur í gegnum mjúkar teygjur með dassi af húmor, yfir í hugleiðslu og slökun með nærgætni og umhyggju að leiðarljósi. Að lokum geng ég endurnærð á líkama og sál út í daginn.